Jóhann Haukur
leftface
Áttirðu við: 10 million dollars? Nei því miður
16:25 20/11/2008
Við sjáum mynd



Fyrstu skref til að varðveita UT hæfni Íslands stigin
12:48 20/11/2008
Microsoft hefur boðið upp á fast gengi við íslenska aðila svo endurnýjun leyfa, kaup á nýjum búnaði og rekstur þeirra verður þá viðráðanlegri á meðan hrunið gengur yfir. Núna er bara að sjá þetta koma frá fleirri aðilum, t.a.m Oracle, Cisco og IBM. Annars á opinn hugbúnaður eflaust eftir að eflast hérlendis í kreppunni sem er gott mál.

Ég vildi bara að Steam myndi bjóða mér upp á fast gengi dollars, segjum 100 kr per dollar, því ég hreinlega tími ekki að kaupa Left 4 Dead á núverandi gengi og verði!

Veruleikafirring leigusala
19:20 19/11/2008
Undanfarið hef ég verið að skoða leigumarkaðinn. Leiguverð hefur fallið talsvert og núna eru farnar að sjást íbúðir þar sem leiguverð er undir 1000kr/m^2.

Það er jákvæð þróun fyrir leigumarkaðinn. Hinsvegar er slæmt að fólk er sífellt að fara fram á verðtryggða leigusamninga. Þvílík vitleysa! Húsnæði er sjaldan keypt á jöfnum greiðslum heldur jöfnum afborgunum. Það þýðir að þrátt fyrir X% verðbólgu á ákveðnum tíma, þá hækka afborganir á mánuði ekki um X%. Hinsvegar hækkar leiguverð um þessi X% á mánuði í takt við verðbólguna (vísitala til verðtryggingar).

Þetta þýðir t.a.m að ef verðbólga verður 20% á nokkra mánaða tímabili og leigt er í upphafi á 100.000 kr á mánuði, þá er leigan komin í 120þ á mánuði eftir verðbólgukúrfinn. Á sama tíma hafa flest önnur rekstrartengd útgjöld hækkað um sömu upphæð, þ.e.a.s matur, olía og annað slíkt sem VNV mælir. En að öllum líkindum hafa laun ekki hækkað. Það tekur töluvert lengri tíma fyrir þau að gera það.

Svo, greiðslugeta leigjenda hækkar ekki í verðbólgu, hún minnkar ef eitthvað er. Með augljóslega síauknu framboði af íbúðum á leigumarkaði þýðir þetta að það er betra að bíða með að leigja því verðmiði á leiguhúsnæði mun EKKI hækka í takt við verðbólgu. Það þýðir, að fólk sem leigir núna út íbúðir með verðtryggðum leigusamningum mun horfa upp á þeim vera sagt upp reglulega því leigjendurnir færa sig yfir í sambærilegri eða betri íbúð sem kostar töluvert minna að leigja per mánuð.

Ég skora á leigusala að hætta þessu verðtryggingarrugli á leigusamningum og bjóða frekar upp á óverðtryggða fasta leigu með endurskoðunarákvæði leiguverðs á x mánaða fresti eða efri mörkum á mögulegri hækkun leigu m.t.t verðbólgu.

Nokkrar góðar tilvitnanir
14:14 16/11/2008
Frederic Bastiat, The Law
When plunder becomes a way of life for a group of men living together in society, they create for themselves in the course of time a legal system that authorizes it and a moral code that glorifies it.



John Maynard Keynes
Lenin is said to have declared that the best way to destroy the Capitalist System was to debauch the currency. By a continuing process of inflation, governments can confiscate, secretly and unobserved, an important part of the wealth of their citizens. [...] Lenin was certainly right. There is no subtler, no surer means of overturning the existing basis of society than to debauch the currency. The process engages all the hidden forces of economic law on the side of destruction, and does it in a manner which not one man in a million is able to diagnose.


Voltaire
Paper money eventually returns to its intrinsic value ---- zero.


James A. Garfield
Whoever controls the volume of money in any country is absolute master of all industry and commerce.


Ron Paul
A system of capitalism presumes sound money, not fiat money manipulated by a central bank. Capitalism cherishes voluntary contracts and interest rates that are determined by savings, not credit creation by a central bank.


Myndir frá Mótmælum
19:35 15/11/2008
Evrópufánanum var flaggað en þetta var ekki eini fáninn á svæðinu!

Jón fylgist með öllu saman og grætur það eflaust að sjá sífellt dönsku krúnuna á Alþingishúsinu.

Löggurnar tóku því rólega og sem betur fer, annars hefði allt farið úr böndunum býst ég við.

Björn fylgdist líka með í fjarska.

Ekki hræddar við að láta skoðun sína í ljós þessar og flottar á því!

Hinn ESB fáninn sem ég sá, og flott krónuskilti þar sem þorskurinn var rotaður og honum blæddi.

Í kirkjunni var að hefjast brúðkaup. Einhverjum þótti sniðugt að prenta auglýsingar frá Sjálfstæðisflokknum og nota sem mótmælaskilti, enda nokkuð fyndið að hugsa til þess, að þegar öllu er á botninn hvolft, þá er traust efnahagsstjórn öflugasta velferðarkerfið! Já, takk fyrir það Geir!


Yfirlýsing um að Ísland sé ríki ei-meir.


Í lokinn fór fólk að ruglast á húsum og kastaði í Alþingishúsið því sem betur ætti að fara í Stjórnarráðið. Svosem skiljanlegt að fólk ruglist þegar að framkvæmdarvaldið hefur nauðgað löggjafarvaldinu áratugum saman og enginn alvöru aðskilnaður er þar á milli hérna á Íslandi.

Táknrænt. Held samt að þessi sé full lítill fyrir hálsinn á sumum enda fitna menn í góðæri.

Víkingasveitinni leiddist svo í hvíta bílnum sínum. Þeir hefðu haft gaman að því að rúnta um á þessum á Pjentedamsgade í Odense! Ætli ég hafi ekki veitt þeim ákveðna afþreyingu með að koma og smella af þeim einni mynd á símann.

Afnám verðtryggingar - Einfalt mál
19:1 15/11/2008
Þegar verðbólga mælist í kringum 2.5% þá ætti einfaldleg að breyta öllum verðtryggðum samningum þannig að þeir verða ekki lengur verðtryggðir heldur bætist við þá vaxtaprósentu sem á þeim er 2.5 til 4.0% vaxtaálag. Á sama tíma fer öll bindiskylda af verðtryggðum inn- og útlánum.

Frá þeim tíma geta lífeyrissjóðirnir einfaldlega tekið meiri stöðu í gulli eða erlendum gjaldmiðlum til verðtryggingar.

En svo kemur Evran auðvitað og þetta hættir að skipta máli.

Verðbólgustuð
23:18 12/11/2008
Var á áhugaverðum fundi um verðbólgu og verðtryggingu hjá Samfylkingarfélagi Reykjavíkur. Ég mælti þar fyrir því að stytta bindiskyldu verðtryggðra innlánsreikninga. Ég talaði um það að það væri til ungt fólk sem hefði haldist lengur inn á foreldrum og í leiguhúsnæði en það hefði viljað til að spara og vegna þess að fyrir því var þetta hrun fyrirsjáanlegt. Það fólk, og ég, á pening sem verður varla í umferð næstu 3 ár vegna bindiskyldu.

Það voru margir að væla yfir hækkandi verði á fasteignum sínum. Ég skil vel að það sé vont að skulda meira en maður á og ég er nokkuð ánægður með tillögur Gylfa um aðferðir til að minnka áhrif af hækkandi afborgunum á þá sem skulda. Hinsvegar er ég ekki til í það að fara að borga niður skuldir annara sem fóru og nutu frelsis við að kaupa íbúð á minn reikning meðan ég hírðist meira í foreldrahúsum en ég hafði hug á og geri enn sem stendur vegna ömurlegra aðstæðna á fasteigna og leigumarkaði! Ef það á að minnka mína eign í verðtryggðum reikningum þá er ég mögulega til í að missa áunna vexti yfir ákveðið tímabil, en ekki verðbætur, GEGN ÞVÍ að bindiskylda reikninga minna verði stórkostlega minnkuð eða jafnvel afnumin! Já, ég vil njóta góðs af því að hafa forðast óþarfa áhættu og geta því keypt fasteign á eðlilegu verði sem ég get svo greitt hratt og örugglega niður með jöfnum afborgunum en ekki jöfnum greiðslum á innan við 25 árum.

Til þessa á fundinum sem talaði um hvað tengdamamma væri nú góð, éttu það sem úti frýs. Þú vonandi skilur inntak þess sem ég mælti fyrir núna og áttar þig á því hversu ömurlegur svona skítahúmor er. Ég skynjaði aðeins á mér þarna á fundinum hroka gagnvart ungu fólki því við hefðum ekki lifað svona skítaaðstæður áður sem fullorðnir einstaklingar. Ég mæli vinsamlegast með því að fólk tali af reynslu við okkur sem yngri erum um hvernig þeim leið og hvernig þau komust í gegnum þá erfiðistíma af sem minnstum hroka og muni í senn hvernig þeim leið þegar verðbólgudraugurinn helltist yfir þau, þá sérstaklega í upphafi 9. áratugs síðustu aldar.

Samt sem áður góður fundur og áhugaverður. Komst einnig að því að fólk í áhrifastöðum hafði ekki hugsað út í áhrif verðtryggingar á húsaleigusamninga og þarmeð húsaleigumarkað. Meira um það seinna.

Hvað eru peningar?
15:48 11/11/2008
Í umræðunni undanfarið hefur mér fundist að hugtakið peningur hafi drukknað í tæknilegum útfærsluatriðum varðandi gjaldmiðla.
Gjaldmiðill er hugtak sem útvíkkar hugtakið peningur og gefur því eigindi varðandi t.a.m útgáfulögaðila og verðgildi gagnvart öðrum gjaldmiðlum.

En peningur er í sjálfu sér einfalt fyrirbæri. Peningur er í senn byggður á trausti, því án trausts mun ég ekki skipta við næsta mann á vöru og þjónustu í stað peninga sem hann hefur á sér eða á að geta verið góður og gjaldgengur fyrir. Peningur er einnig ávísun á erfiði annara einhverntímann í framtíðinni. Því eru peningar ávísun á skuldir þar sem skuldir eins eru peningar annars og við treystum peningunum fyrir því að gegna þessu hlutverki.

Það er ágætt að hafa þetta á hreinu þegar farið er að hugsa út í verðtrygginguna annars vegar, og svo milliríkjadeilurnar okkar við Breta og Hollendinga hinsvegar.

Varðandi milliríkjadeiluna þá má ekki gleymast að við erum í heljarinnar vandræðum vegna lítils traust. Á ábyrgð íslenskra fyrirtækja glataðist stórfenglegt magn af ávísunum á mikið erfiði erlendra aðila, sem þeir vilja nú að við borgum þeim þá til baka með að erfiða sjálf.

Varðandi verðtrygginguna þá fer traustið að skipta meira máli. Traust krefst ákveðinnar gagnkvæmni. Ég tek verðtryggt lán því ég treysti því að ytri aðstæður verði innan ákveðins ramma til að gera greitt mótaðila mínum lánið. Mótaðliinn gerir í raun sömu forsendu að því að veita lánið. Hann gerir sér vel grein fyrir því að ef ytri aðstæður (lesist: verðbólga) fer upp úr öllu valdi, þá er geta mín til að borga honum takmörkuð. Það þarf því að reikna traustið inn í verðtrygginguna og hafa ákveðinn efri mörk á vaxtahækkunum sem leggjast á höfuðstól vegna verðbólgu.

Báknið burt?
22:35 1/11/2008
Samkvæmt þessari frétt á Vísi hefur OECD reiknað það út að skattbyrði þjóðarinnar jókst úr 31.2% af GDP í 41.4% frá 1995 til ársins 2007. Ég veit ekki betur en að Flokkurinn hafi verið við völd og tögl allan tímann, með Fjármálaráðuneytið og Forsætisráðuneytið bróðurpart tímans.

Það er því frekar fyndið að þeir sem aðhyllast minnkun útþenslu ríkisins skuli hafa leitað í þennan flokk til þess að ná fram þeim markmiðum.

Hærri skattar eru réttlátanlegir ef þeir fara í aukna samfélagslega þjónustu og nauðsynlegan rekstur Ríkisins. Þeir eru það hinsvegar ekki fyrir útþenslu utanríkisráðuneytis, eftirlauna sérstakra opinbera starfsmanna eða til annara sérbitlinga.

Eru horfnu hlutabréf Birnu partur af stærra máli?
2:15 31/10/2008
Getur það verið að hlutabréfin sem nýr bankastjóri hins Nýja Glitnis, Birna Einarsdóttir, átti að hafa keypt í Glitni en á allt í einu ekki, tengist því sem Bankamaðurinn benti á hjá blogginu hans Egils?

Stemmir það að hún sé ein af fjölmörgum sem hafa fengið skuldir sínar afskrifaðar vegna hlutabréfakaupa í þeim banka sem það vann hjá, svo hægt sé að halda því í starfi?

Úr DV:

Viðskipti Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Glitnis, með kaup á bréfum í Glitni 27. mars 2007 eru skráð í Kauphöll Íslands. Vilhjálmur Bjarnason segir að um leið og viðskipti hafi verið tilkynnt í Kauphöllinni taki menn á sig þær skuldbindingar sem fylgja. Birna hefur sagt frá því í fjölmiðlum að hlutur hennar í Glitni hafi horfið. Vilhjálmur segir þetta vera álíka tæknileg mistök og þjófnaður Árna Johnsen.

Birna hefur haldið því fram að mannleg mistök hafi leitt til þess að kaup hennar á bréfum í Glitni hafi ekki farið í gegn. Vilhjálmur segir að þegar viðskipti hafi verið tilkynnt í Kauphöll Íslands séu þau orðin raunveruleg og þá sé ekki hægt að bera við minnisleysi. Birna er núverandi bankastjóri Glitnis en hún keypti sjö milljón hluti í Glitni á genginu 26,4 fyrir samtals 184 milljónir króna. Engin sala á hlutum Birnu er skráð í Kauphöllinni. Vilhjálmur segir það alveg ljóst að bréfum Birnu hafi verið kippt út á bak við tjöldin. Það sé ekki hægt að bera við minnisleysi í svona málum.


Bankamaðurinn hjá Agli:

Smá saga af því sem er að gerast innan bankanna þriggja núna - staðfest frá fyrstu hendi þar sem ég er einn af þeim sem þetta á við. Finnst siðferðisleg skylda mín að láta vita af þessu.

Mikill fjöldi starfsmanna hefur keypt hlutabréf gegn láni (og þá helst erlendu) á undanförnum árum og jafnvel stuttu fyrir hrunið. Innan bankanna er unnið að því hörðum höndum að leysa úr þessari flækju og losa fólk undan þessari skuldbindingu - ástæðan er m.a. sú að starfsmenn sem tapa öllu og verða gjaldþrota mega ekki vinna hjá bankanum.

Hvaða sanngirni er þetta - ef losa á ákveðinn hóp undan skuldbindingum, afhverju á það ekki við alla. Þetta þarf að fá á hreint frá Björgvini G., formönnum skilanefnda og/eða núverandi bankastjórum.

Annað að fjölmargir framkvæmdastjórar seldu eitthvað að bréfum vikuna fyrir hrunið - FME hlýtur að rannsaka það og bakfæra slík viðskipti, við treystum þeim til þess (eða ekki!).


Vá, þetta er svakalegt. Bara rosalegt. Þessu þarf að svara á morgun, ef ekki í gær!

Ísland - Spilltasta Land í Heimi.

Eftirlaunafrumvarpið burt!
17:29 30/10/2008
Ef að eftirlaunafrumvarpið verður ekki afnumið og sendiherrum fækkað og dregið almennt úr eyðslu í utanríkisráðuneytinu þá mun ég ekki geta kosið Samfylkinguna og þar með engan flokk í næstu kosningum sem nú er á þingi.

Drífið í þessu og það strax!

Nýir tímar - Við mótmælum öll
23:38 16/10/2008

"Það eina sem hefur tapast eru peningar"
23:48 15/10/2008
Ég heyrði í kvöld fullyrðingu um að það eina sem hefði tapast væru peningar.

Þessu er ég ekki sammála.

Við höfum tapað framtíðarplönum okkar, fjárhagslegu öryggi, mannorði Íslands og trausti.
Við eigum á hættu að tapa samfélagslegum gildum með vaxandi atvinnuleysi. Við eigum í hættu að tapa lífum einstaklinga sem verða fyrir miklu áfalli. Við þessu þarf að bregðast og það fljótt. Sem betur fer er mikil áhersla á félagslega þáttin og á velferðarkerfið sem stóran part af viðbrögðunum við hruninu.

Ég heyrði góða hugmynd áðan. Hún var á þá leið að fólk gæti fengið að nota séreignarlífeyrissparnað sinn til þess að borga upp skuldir. Ég tel að þetta þurfi að vera leyft.

Ég ætla einnig að koma fram þeirri hugmynd að Alþingi breyti lögum um verðtryggingu tímabundið á þann hátt að fólk geti geymt peninga óbundna inn á verðtryggðum reikningum.
Þetta kemur til með að efla fasteignaviðskipti á næstu árum. Þá er fé laust hjá þeim sem eiga einhverja peninga en vilja verja verðgildi þeirra fram að fjárfestingu. Þetta minnkar líka flótta úr krónu yfir í erlendan gjaldeyri. Staðan er í dag er óþolandi, því núna þarf að binda lausafé í þrjú ár til þess að vernda verðgildi þess án áhættu.

Brennandi Spurning
2:20 12/10/2008
Við vinirnir hittumst áðan til að spila og spjalla líkt og mælt er með til að halda geðheilsunni á þessum tímum. Það kom upp í tali okkar að þessi vika hefur verið sannkölluð MEGAVIKA m.t.t þeirra atburða sem gerst hafa.

Þá kom á okkur hljóðan, afhverju er Dominos ekki með MEGAVIKU loks þegar um raunverulega megaviku er að ræða?!

I hope I'm not becoming a Conspiracy Theorist
0:29 10/10/2008
But perhaps I am? Please tell me that there is no valid point in the following.

Iceland is a country that only two weeks ago had a hugely leveraged banking system.
The debts were about 12 times the countries GDP. How this was allowed to happen without breaking it apart to suit the risk to the operations in each country isn't really understandable.
For instance, it is known that the central bank of Iceland was allowed to increase the reserve requirement of the banks, but it lowered it in the middle of our economic boom! Then went ahead and raised the interest rate on the krona, leading to a massive surge of foreign loans to both individuals and Icelandic corporations to avoid the interests of it's own currency.
That led to even more expansion, since all that foreign money loaned strengthened the krona and gave way to more imports.

Today we hardly have a banking system. And who is to blame? Looking far back, we have many culprits. But in the short term, it's our government and our central bank that failed. In a nation that is tiny, some 300.000+ people, connections are the key to power. And some have more power than others.

If you can short sell those formerly huge banks or make money of their CDS, then ensure that they fall under, just how much money can you make? Just how rich can you become? Even if you are just working with a powerful financial institution that gives you a small share of the profit and pay for the costs of short selling? (I assume it is impossible to do naked short selling in such tremendous amounts).

Kaupþing was among the world's largest corporations (in the top 1000 at a time). Landsbankinn and Glitnir weren't that much smaller. Why was the sequence of bad events that led to a total financial catastrophe triggered by denying Glitnir a mere 15 billion isk loan and instead promising to inject it with a 85 billion isk capital? When, 1 week later, Kaupthing was given a 500 million € bridge loan for 4 days, and fell 2 days before being able to pay it back! The trigger: Davíð Oddson made a blunder of biblical proportions on national TV. That blunder sparked an understandable reaction from the British authorities which lead to a technical default for Kaupþing.

So, 2 weeks ago, no betting was allowed with a 'mere' 15 billion isk to Glitnir and now all seems to be lost!

Why was the announcement about the loan from the Russians not made last week? Only a bit earlier and our financial system could have been saved! Why were so many mistakes made in the most crucial time frame? Why wasn't the sequence of events in a slightly different order? Why wasn't the interview with Davíð Oddson recorded and then carefully censored before being broadcast? Why did the Icelandic Government take this huge risk in allowing Davíð Oddson to speak publicly in live television at THE MOST critical time in our financial emergency? Knowing that he is NOT properly educated to be a central banker, that he is a politician with strong power over the longest ruling party of Iceland, and knowing that he likes to talk to 'his' fellow people as a politician!

I'm flabbergasted about the whole thing. Looking back at these two weeks, the only logical reason for this huge mess is that some Icelandic and foreign people are about to make a fortune of the whole mess at the expanse of the rest of us, the British, and other fellow European nations.

Please prove me wrong!

p.s Did I mention that JP Morgan was working closely with our government last weekend when they pretended to be planning a 'response package', only to say afterward that everything seemed OK and nothing was needed to be done right away?

Did I mention that the press conference on Wednesday was for some reason delayed from 11 am to 4 pm (Icelandic time), giving the British ample time to seize Icelandic companies operating in Britain?

Hopefully history will eventually show that it was all Lehman's fault and the subsequent total freezing of the credit markets that caused this.

Nokkrir punktar
10:19 9/10/2008
1. Stórt hagkerfi er forsenda beytingu hagfræðikenninga við stjórnun.
Íslenska örkrónan var og er of lítil til þess að vera á floti og vera stjórnað af veðrbólgumarkmiðum.
Það er aðeins kenning að stýrivextir hafi áhrif á verðbólgu. Undirstaða þeirrar kenningar er t.a.m að kerfið sé lokað. Það má nálgast með nægjanlega stóru hagkerfi þar sem tregður hafa áhrif á framgang mála. Íslenska hagkerfið var ekki nógu stórt. Það er augljóst. Að auki flækir tvöfalt myntkerfi á Íslandi, þ.e.a.s verðtryggða krónan og óverðtryggða krónan málið töluvert.

2. Spálíkön byggð á sögulegum gögnum spá aldrei fyrir um hluti sem hafa ekki gerst áður.
Þegar þú byggir á sögulegum gögnum til að taka inn breytur í t.a.m módel byggt á línulegri aðhvarfsgreiningu, þá ertu að gera ráð fyrir línulegum áhrifum byggðum eingöngu á þeim upplýsingum sem í gögnunum eru. Í síbreytilegu pólítísku og efnahagslegu kerfi samtímans þá eru endalausar ósamfellur í framtíðinni. Framtíðin er ólínuleg. Ef það besta sem fólk getur gert er að taka inn nýjar breytur eftir óvæntar uppákomur, þá erum við illa stödd með að meta framtíðina. Nota bene, það eru til mörg betri spálíkön en línuleg aðhvarfsgreining, en því miður kann fólk flest bara að nota hana. Þetta var atriði sem ég tók vel eftir þegar ég vann hjá Áhættustýringu Kaupþings. Fáir voru spenntir að prófa Random Forests, Naive Bays, Tauganet og önnur flottheiti, sem virka að ég tel, mun betur á fuzzy heim fjármála sem við búum í.

3. Áhættudreyfing eða samtenging áhættu?
Það er allveg augljóst að lánsfjárkreppan sýnir okkur að áhættudreyfing hefur ekki virkað. Í raun virðist þetta vera sambærilegt því að raðtengja fjöltengi og telja sig vera öruggan afþví að þú ert kominn með fleiri innstungur. Hinsvegar lá þetta allt á sömu greininni og féll því um leið og rafmagnið fór af. Það þarf að vera skýr stærðfræði í komandi lögum um eignarhald á bönkum sem tryggir að eignarhaldið sé ekki tengt net.

Kreppa hvað? Framleiðum Bíódísel í hverjum firði
0:9 7/10/2008
Jæja, ég ætla að skella fram hugmynd sem ég hef haft í maganum í nokkrun tíma.

Það er hægt að framleiða etanól úr þangi. T.a.m þá hafa Japanar verið að prófa það, Írar og Ítalir. (Sjá t.a.m http://www.forbes.com/afxnewslimited/feeds/afx/2008/10/01/afx5496120.html)

Mér er spurn: Afhverju að setja af stað olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum, þegar við gætum lagt allt Djúpið undir það að rækta okkar eigin bíódísil?

Við höfum ágætis þekkingu á því að sækja afla í hafið og vinna hann á landi. Við ættum að geta gert þetta. Þetta gæti líka haft jákvæð samlegðaráhrif við fiskeldi í sjó og mögulega myndi uppræktun á þangi haft jákvæð áhrif á stærð fiskistofna okkar vegna aukningu lífmassa í við strendur landsins.

Það er líka augljós kostur að notkun á þangi til að framleiða etanól gengur ekki á ræktanlegt land. Það er ekki einsog að við höfum of mikið af ræktanlegu landi hér á Íslandi. Hinsvegar höfum við töluvert mikið af strandlengju og fjörðum.

Mér þykir þetta svo rakið dæmi til að gera skör í kreppunni. Það er verið að rannsaka þetta framleiðsluferli út um allan heim og hægt að fá styrki í að koma þessu af stað. Svo þegar framleiðsla er farin þá getum við eflaust selt eitthvað af út fyrir gjaldeyri og gert landbúnað óháðan innflutning á erlendri olíu. Ísland væri þá að framleiða orku í flestum formum. Tala ekki um ef við finnum líka hefðbundna olíu á Drekasvæðinu.

Bíódísel, olíá raforka, vetni, metan-gas. Kreppa hvað?

Hvað verður um internetsaðgang okkar?
18:2 6/10/2008
Mig langar bara að impra á því að við erum í samningum við erlenda aðila varðandi gagnaflutninga upp að vissu marki. Mun verð á internettengingu stórhækka bráðlega?
Heimili og fyrirtæki þurfa á sinni internettengingu að halda.

Aðgangur að gagnasöfnum erlendis sem háskólar bjóða upp er nú orðinn ansi dýr.
Viðhald á rekstrarbúnaði mun verða dýrara.
Nýjir beinar, switchar, kaplar, netþjónar, uppfærslur á hugbúnaði og hugbúnaðarleyfum kostar sitt og mun hækka í verði. Þetta er stór pakki.

Öll kerfi okkar ganga á þessu.

Mögulega mun þó gengisfallið koma sér að góðu fyrir alvöru hugbúnaðargerð á Íslandi.
Ég áætla að flestir starfi í dag við IT stöf, en ekki SE/CS störf sem eru SE/CS menntaðir.

Reikningsdæmi Geirs?
0:0 6/10/2008
Seðlabanki: 500 milljarðar
Lánalína sem hann vill ekki viðurkenna: 500 milljarðar
Sala eigna banka erlendis: 600 milljarðar

Samtals
1600 milljarðar í gjaldeyri.

Var það ekki c.a talan sem átti að duga?

Bara verst að það er brunaútsala í dag.

Verkefni helgarinnar
13:5 15/9/2008
Ég er með JVC upptökuvélina hans Pabba í láni og því hef ég verið að taka upp töluvert upp á video. Ég ákvað einnig að taka fartölvuna mína í sundur til að þrífa úr henni ryk og skít og setja betra kælikrem milli örgjörvans og kælikerfisins.

Nú, upptökurvél + svoleiðis verkefni þýðir auðvitað að þið getið þá séð þetta:



Rétturinn til að ferðast á vegum landsins
21:47 4/9/2008
Ég stórlega mæli með þessari grein. Það er sjálfsagt mál að fólk hafi rétt til þess að ferðast á allan máta á þeim vegum sem til eru á landinu. Ef vegir eru eingöngu gerðir fyrir bíla og önnur vélknúinn ökutæki þá hafa ekki allir sama rétt til að komast á milli staða. Einnig er þessi réttur mikilvægur til þess að tryggja að á landinu geti verið sjálfbærar samgöngur, þ.e.a.s, Íslendingar geti komist staða á milli þótt enginn olía sé á landinu, samgöngur sem krefjast ekki utanaðkomandi innflutnings og orkuöflunar til að hægt sé að komast á milli staða.

Smá memo til Skeljungar Hf (Shell)
19:47 3/9/2008
Sæt auglýsing með litlum börnum að ýta leikfangabíl þvers og kurs í ægurfagri íslenskri nátturu fær mig EKKI til að kaupa meira bensín frá ykkur. Eða kaupa bensín frá ykkur yfir höfuð. Hér er smá hugmynd: Spara markaðsetningarkostnað og lækka álögur í staðinn! Það þekkja allir vörumerkin Shell, Olís, N1 (Esso), Atlantsolíu, Orkuna, Egó o.s.fv.. Það sem skiptir máli er verðið á dælunni!

Leiðið verðlækkanir og kúnnarnir koma.

Google Chrome
0:36 3/9/2008
Google Chrome er hraður og flottur vefrápari. Það má nálgast hann hér.
Chrome er reyndar RUGL hraður. Google höfðu fyrir því að láta Dani gera nýja javascript vél sem keyrir ofan á eigin keyrsluumhverfi og er kóðinn þýddur yfir í binary sem er svo lesið af vélinni. Hver einasti tab er í sér process og því notar þessi browser mun betur vélbúnaðinn á tölvunni en hingað til hefur verið gert.
Annars algjör snilldarhugmynd að nota teiknimyndasögu til að lýsa fídusum hugbúnaðar.
Flottur fídus að hafa incognito mode en þá vistast ekki vefrápið í vefrápssögunni.
Hinsvegar verður Chrome ekki minn aðalbrowser fyrr en Adblock er komið fyrir hann því ég þoli ekki vefauglýsingar út um allar trissur! Einnig vantar að geta sett lykilorð á browserinn svo að vefrápssagan, vistuð lykilorð og þessháttar eru ekki aðgengileg þeim sem fær að komast á netið hjá manni. Ég hef lykilorð á Firefox svo að enginn getur viljandi eða óvart farið t.a.m inn á gmail og aðrar síður hjá mér, og þá eru viðkomandi heldur ekki óvart að vista þeirra persónuupplýsingar á minn profíl.

Svo er mjög áhugavert að skoða EULA á Google Chrome:
11. Content license from you

11.1 You retain copyright and any other rights you already hold in Content which you submit, post or display on or through, the Services. By submitting, posting or displaying the content you give Google a perpetual, irrevocable, worldwide, royalty-free, and non-exclusive license to reproduce, adapt, modify, translate, publish, publicly perform, publicly display and distribute any Content which you submit, post or display on or through, the Services. This license is for the sole purpose of enabling Google to display, distribute and promote the Services and may be revoked for certain Services as defined in the Additional Terms of those Services.

11.2 You agree that this license includes a right for Google to make such Content available to other companies, organizations or individuals with whom Google has relationships for the provision of syndicated services, and to use such Content in connection with the provision of those services.

11.3 You understand that Google, in performing the required technical steps to provide the Services to our users, may (a) transmit or distribute your Content over various public networks and in various media; and (b) make such changes to your Content as are necessary to conform and adapt that Content to the technical requirements of connecting networks, devices, services or media. You agree that this license shall permit Google to take these actions.

11.4 You confirm and warrant to Google that you have all the rights, power and authority necessary to grant the above license.


Sæll!

Regnbuxur
20:11 28/8/2008
Ein af kennisetningum hagfræðinnar segir að kaupandi taki ávalt upplýsta ákvörðun um að kaupa ákveðna vöru m.t.t gæða, verðs og annara þátta. Þetta á að leiða til samkeppni um verð og þjónustu og orsaka stöðugt og gott verðlag.

Fæstir íslendingar myndu nú falla undir það að vera 'rational buyer's en ég er eflaust enn af þeim mest rational. Þannig er málum háttað að ég hef eytt amk 10 klukkustundum undanfarnar vikur í að finna mér regnbuxur. Ég hafði ákveðnar kröfur um gæði, ég þurfti að geta hjólað í þeim þannig að þær máttu ekki vera of þungar, síðar eða víðar. Ég þurfti að geta gengið upp á fjöll í þeim svo þær þurfti að vera alvöru regnheldar og nógu víðar fyrir þessháttar atferli. Síðast en ekki síst máttu þær alls ekki vera of dýrar.

Eftir að hafa farið í Markið, Örninn, G.Á.P, Everest, Intersport, Útilíf, Cintamani búðina á Laugaveginum, útsölumarkað 66°N, útsölumarkað Cintamani í Hafnarfirði og Regatta búðina þá voru mér allar bjargir bannaðar. Hvergi fann ég regnbuxur sem uppfylltu gæðakröfur mínar nema of fjandi dýrar, eða of síðar, eða eitthvað annað sem ég gat bara ekki sætt mig við. Nema í dag, þá loksins fann ég regnbuxurnar mínar í Hjólaspretti í Hafnarfirði! Eftir afbragðs þjónustu við umleitanir mínar varðandi hjól handa Láru ákvað ég að spyrja verslunarmanninn út í regnbuxur. Þá kom í ljós að hann var umboðsaðili Agu á Íslandi, en ég hafði séð þannig buxur í Erninum, en bara ekki eins flottar. Ég lét hann vita af þessu og bætti því við að í útsölunni hjá Erninum væri 35% afsláttur sem er nú satt og rétt. Hann sá að ég var svona ekki allveg að fara að kaupa buxurnar fínu á 8.900 kr, hafandi imprað á nísku minni og veru minni í Danmörku undanfarið ár, svo hann lét mig fá 30% afslátt og innsiglaði kaupin.

Ég er hæstánægður með buxurnar og mun ég eflaust sjást vel í þeim hjólandi í grenjandi rigningu næstu mánuðina, en ánægðust er Lára með að þessum kaupum mínum sé loksins lokið. Hversu mikið ætli allur þessi tími hafi í raun kostað mig? Ég held að ég og mín regnbuxnakaup sé rakið dæmi til að sína fram á hversu fráleit og dýr þessi kennisetning er.

Ný færsla
14:25 21/8/2008
Eða hvað?